Return of the teacup: Spoons revenge - Starring Geoff, the biscuit
12.11.2006 14:43:29 / Maris

maris.bloggar.is

Ég er flutt.

maris.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 12:55:47 / Maris

How do you like it?

Mjá.. ? I like it. It is awesome. Awesome is ruling my vocabulary. That and "Ow, my feet!" ... and sweetness.

Uppskrift að Middle East sósu:

12 hvítlauksgeirar
180 g engilfer
lófafylli af steinselju
400 g hunang
3 mtsk Dijon sinnep
(!) olía

Ég bókstaflega bið ykkur að prófa þessa sósu. Hún breytir venjulegu salati í hlið að Nirvana... minn tebolli, minn efkin tebolli.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 20:26:54 / Maris

The music of silence

Halló fólk, var að koma í gær frá Ástjörn. Þetta voru tvær laangar vikur en ég hef lært mikið... til dæmis um matarvenjur Færeyinga, sem eru vægast sagt skondnar n.n, ég veit það ekki kannski er fullt af fólki sem notar púðursykur út á brauð og kanilsykur með hafragraut... o.O Annars sá ég um þvottahúsið, þar sem ég þreif föt af um 70 manns ásamt því að lesa fyrir stelpurnar á kvöldin.. Sögu sem nefnist Ævintýri Tréhestsins eftir einhverja Ursúlu Haagen... Forsjáanlega sögufléttan, klisjukenndu ævintýrin og sársaukafullar tilraunir til persónusköpunar ásækja mig enn... *hrollur* Stelpunum flestum þótti þetta samt skemmtilegt og það var pointið með þessu öllu þannig þetta var allt í góðu :) Það var alveg fullkomið veður nánast allan tíman: sól og logn á daginn en svo smá úði á næturnar til að halda öllu fersku og grænu. Krakkarnir áttu til að "detta" miklu oftar í vatnið þegar það var hvað heitast, svona úps ég bara sko... hadna var að skvetta og svo bara fór ég óvart með fótinn splass... ehh, hann gerði það! osfr osfr... mjög skondið n.n, Svo voru krakkarnir alltaf að koma inn í þvottahús, ég reyndi að banna þeim það en.. ég veit það ekki mig langaði ekki að vera reka þau í burtu. Mörg þeirra sem sóttu þangað voru krakkarnir sem voru með heimþrá, áttu erfitt með að eignast vini eða bara vantaði einhvern til að tala við. Mér fannst rosalega notalegt að spjalla.

Svo voru það bandarríkjamennirnirnir (Ástjörn eru þvílíkt fjölþjóðlegar sumarbúðir). Þarna var Mike sem var trúboði sem hafði ferðast víða um lönd, það undarlega var að hans uppáhalds áhugamál voru skotveiðar. Hann átti um 20 mismunandi byssur og riffla o.O Hann var samt rosalega skemmtilegur náungi, eftir náttúrulýsingarnar hans langar mig en meira að fara til BNA. Svo var það Jeremy sem er ótrúlega fyndinn kall, hann hefur verið að læra íslensku við HÍ núna í dáldinn tíma en á erfitt með að halda út að lesa íslenskar bókmenntir, I don't know whyyy ;) Hann var næturvörðurinn og kom einu sinni að mér þar sem ég hafði sofnað í þvottahúsinu eftir erfiða törn, ég gaf honum víst vægt hjartaáfall... en hann fylgdi mér svo að laufskálanum þar sem ég svaf bara til að vera viss að ég dytti ekki í einhvern runna og slasaði mig... :( Já og svo voru nokkrar heimsóknir, fyrst kom Héðinn sem er eldgamall ástyrningur. Hann hefur komið til Ástjarnar á hverju ári í eitthvað um 25 ár eða eitthvað álíka, og er 30 sjálfur. Hann vafði samstundis krökkunum um fingur sér og fékk þá til að gera allt sem hann sagði þeim, eins og til dæmis að ganga um eins og bretar með regnhlífar... Hann plataði mig meira að segja til að keppa í stultuhlaupi o.O sem var reyndar rosalega gaman n.n, Svo kom Ævar :haha: sem var algjör snilld. Hann hjálpaði til í þvottahúsinu og kenndi krökkunum að spila nothing else matters á gítar.. sem er reyndar víst bannað á Ástjörn, þau eru á móti þannig tónlist ... *muldrar* En bara... vá hvað það var samt gaman.

Emm, já. Svo nú er ég bara komin heim og ég er ótrúlega sátt með það *faðmar siðmenningu* Kíkti niður í útvarpshús í dag, sem ég hef aldrei komið í áður, og fékk að sjá Ævar lesa ævintýrið Nornirnar eftir Ronald Dahl n.n, very funny and yet scary... Hitti þar fyrir tilviljun Ingimar sem var með mér í tölvunördabekknum í 1. bekk í MA, lítill heimur... ég er ennþá að venjast því. Og já! ég er komin með íbúð hjá Stúdentagörðunum :D:D:D *dansar uppá borði* let the feng shueing begin! ... I have no idea what that is... Anyways, unfreakinbelievable! Þú, ég, pönnsur. Núna. RAWRAWRAWR!

lag dagsins: Good Timin' - Jimmy Jones  -hlusta smá? http://www.amazon.com/gp/music/clipserve/B000005HOT001016/0/ref=mu_sam_wma_001_016/104-6055495-2128760 arg, linkadótið virkar ekki hérna..

Marís


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 01:30:53 / Maris

Ástjörn

Næstu tvær vikur verð ég á fallegasta stað landsins, heppin.
Ég mun vera í fríu fæði og húsnæði, heppin.
Litli brósi kemur með og fær örugglega nógu mikla útrás og hreyfingu til að endast honum árið, heppinn.
Og já, ef það hefur farið fram hjá einhverjum eru stelpurnar að fara til Kína, heppnar.
Mig svimar og ég sé óskýrt... heppin.
Ég er annars búin að segja heppin svo oft að það er farið að tapa merkingu sinni... leppin? Endilega hringið og böggist í mér í vinnuni annars, ég er með hleðslutæki núna :P
Maris, -tvær vikur netleysis, hvað á ég að..

» 10 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 00:19:38 / Maris

læknisfræði?

jæja, ég var að fá úr læknisfræði inntökuprófinu; komst ekki inn. Ég var í sæti 56.-57. og það voru 48 sem komust inn, af um 270 manns... Tölfræðin, it bites... Þeir vita ekki hverju þeir eru að missa af, þeir geta gleymt lækningunni við krabbameini núna! Ég ætla frekar að gerast efnafræðingur og hanna sjampó sem gefur manni Donald Trump hár. Ég mun kallaða: Make-your-hair-look-weird Shampoo. We put the poo - in shampoo. Svo mun ég bíða eftir að jörðin muni tortímast í eigin furðuhári á meðan ég klappa hvíta kettinum mínum sem ég mun nefna Snjóbolta...

eða ekki.


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 13:27:53 / Maris

rifrildi

Him: Give me the Ipod!
Me: No way!
Him: You! You are a....... TREE!
Me: Well you're a... a.. GREEN TOAD!!
Him: *admiring ghasp* ... you are the Shakesphere of my life!

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 16:46:11 / Maris

lítil smáatriði

Nágranninn minn er alltaf að syngja. Í sturtunni, seint á kvöldin doin' waha? Reyndar syngur hann bara þegar hann heldur að enginn sé að hlusta, nema súkkulaði brúni labradorinn hans... sem er _svo_ mikil dúlla, hún er eitthvað um 3 ára en lætur eins og hálfs árs hvolpur. Missir vitið þegar maður gengur framhjá garðinum og reynir að lokka mann nær til að knúsa mann og slefa á mann. I like it *sigh* Ég var líka að komast að litlu smáatriði varðandi afa minn, honum finnst óþægilegt að klæðast rauðu. Fyrst hélt ég að það væri útaf því að þetta er áberandi litur en ástæðan er víst kommúnisminn, hann er varasamur það er satt. Annars er ég mjög oft í rauðu þegar ég hitti hann, en honum virðist vera alveg sama um það, þetta er víst spurning um prinsip. Mér finnst svo rosalega gaman að komast að svona litlum smáatriðum um fólk, fær mann til að skilja það betur... smáatriðin og hamingjan... hmhm... hehe það meikar betur sens en sardínurnar, vá hvað það var ekki að virka.

Marís


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 15:56:07 / Maris

Sólþurrkað hár

Jæja, tilraun nr.3, blog.central er alltaf að éta færslurnar mínar *muldrar*

....

Ég er komin aftur heim! Það var svo gaman n.n, verst hvað það var stutt... Það var sól, gul strönd, stórar öldur og fullt af túristabúðum með all of mikið af dóti sem mig langaði í. Var tvisvar elt af grunsamlegum leðurklæddum mönnum *hrollur* sem var heldur óhugnalegt þar sem við höfðum verið vöruð við mannræningjum o.o Fórum að "enda alheimsins", smökkuðum portúgalst púrtvín (átti að kallast sætt en euch!), kaffilíkjörið var samt betra (hvað hét það aftur...). Svo fórum við til Seville sem er ótrúlega falleg borg og ég smakkaði Burrito Chili con Carne (ok sósan! Ég varð dofin og fékk blöðrur í góminn! Pínu menningasjokk) Svo fórum við á uppsetningu af Pétur Pan þar sem flest hlutverkin voru leikin af sæljónum! :

"What was that Wendy? Where's Tinker Bell?"

"Oi, oi, oi."

"What? Did Hook take her to his ship?!

"Oi, oi, oi." *nods*

priceless :haha:

Allavina svo fékk ég líka afmæliskveðju frá öryggisverði hjá Securitas sem hafði yfirheyrt mig eftir að ég hafði farið inn í búð sem ég hélt að væri opin (hurðin var opin!) og viðvörunarkerfið fór í gang *feels silly* .. hann hafði þá verið að biðja um númerið mitt fyrir sjálfan sig, ekki sem part af vinnuni *fattlaus* En já svo sáum við tígrishákarl, í návígi. Rosalega kalt augnaráð dauðans *hrollur*, mjög óþægilegt að láta horfa á sig sem hrátt kjöt o.O og við sáum höfrunga! Rosalega held ég að það sé gaman að þjálfa höfrunga *dreymir*

hmmm.... skrítið, ég er orðin svo brún á húðinni, mjög undarlegt þar sem ég var orðin virkilega vön krítar-þemanu... :þ

chus,

Marís


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 21:17:31 / Maris

You are my Everest

Sagan sem ég ætlaði að segja er aðeins farin að síast úr minninu, þannig ég spinn bara inn í eyðurnar....

 málið var að við beygðum inná eitthvað sem við héldum að væri endurvinnslustöð - stóð Compression e-ð á skiltinu- en svo var þetta mjög afgirt lokað svæði, og við enduðum fyrir framan stórt víggirt hlið, fyrir framan risastóra byggingu, ég fékk svona Area 51 fíling. Svo stóð á skilti að allur aðgangur væri bannaður nema með tilskyldu leyfi. Fljótlega kom stórbyggður vörður með undarlega stór sólgleraugu sem virtist vera tilbúin í átök, við höfum verið mjög grunsamlega útlítandi víst 8), þannig við drifum okkur og snerum við. Næstu daga tókum við eftir dularfullum bílum sem voru alltaf lagðir fyrir utan húsið okkar, undalegu suði þegar við vorum að hringja, og fólk klætt í jakkaföt segjandi vera frá símafyrirtækinu að laga síman :| en það tengist örugglega ekkert n.n

Annars seinna um kvöldið bauð garðyrkjumaðurinn okkar Wendel mér á pöbbinn uppá öllara og smá karókí, ég tók "My House", sem var uppáhalds lag Wendels, við góðar undirtektir. Eftir nokkur "pints" fór að síga á liðið og Wendel fór að tala um að samband okkar gengi aldrei upp, það væri hann ekki ég því ofan á það að hann talaði svo mikla cockney að ég skildi varla neitt af því sem hann sagði (not even the locals did) en ofan á það viðurkenndi hann fyrir mér að hann væri "compulsive tapdancer" og gæti "hurt me in ways I couldn't imagine"... við þessa játningu taldi ég nóg komið og hélt heim.

....

og þannig var sagan... nokkurnvegin :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun